Gunna

Kæra dagbók

04.02.2008 17:02:19 / gunna

jáh.. kerlingin er á lífi...

og komin til Reykjavík capital. Mamma og pabbi skutluðu okkur mæðgum á síðasta föstudag og fóru sjálf til baka á sunnudag. Svo nú er að sjá hvort maður höndli lífið aleinn ;) engin mamma eða pabbi til að taka við..

haha.. en so far so good.. lífið gengur út á drykkju, bleijuskipti og horfa á Silvíu þroskast dag frá degi :)

annars hef ég nú mest lítið að segja sko.. en er allavega á lífi ;)  


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 16:26:48 / gunna

bara fyrir þig helena

haha.. já.. maður er svo rosa bissí þessa dagana :) bara með barnið hangandi framaná mér og sef þess á milli ;) nei nei.. segi nú svona.. gengur bara nokkuð vel hjá okkur.. Þyngdist þvi miður ekki mikið fyrst en tók svo kipp núna kellin og er búin að þyngjast um 110gr á 3 dögum :)

annars gerir maður mest lítið.. fórum reyndar í fyrstu heimsóknina í gær. .til siggu .. hún Silvía (já..hún er komin með nafn ef þið vissuð ekki ;), ennþá eftir að fá annað í viðbót en það kemur) Hún var nú ekki sátt að vera sett i stólinn en það batnaði um leið og komið var í stólinn og svo var hún bara on best behaviour hjá siggu og jesse þangað til átti að fara heim ;) hengum þar alltof lengi , sorry sigga ef dagurinn í dag var erfiður :) en það var mjög gott að fara svona út aðeins og spjalla.

veit ekki alveg hvenær ég kem suður.. er farið að langa pínu en finnst líka voða gott að vera hérna.. þannig að maður veltist pínu fram og til baka :)

jæja. .. þetta var status report..  


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 20:13:44 / gunna

lítil prinsessa komin

jæja.. þá er langþráðum áfanga náð. Prinsessan kom í heiminn laugardaginn 29.des kl 21:00. Gat ekki beðið eftir áramótunum (spurning hvort hún þakkar mér seinna meir ;)) Fæðingin gekk nokkuð hratt fyrir sig, fór upp á deild rúmlega 2 og fór ekkert heim aftur fyrr en á gamlársdag og þá með litla skottu. Hún var 4080gr og 52cm, fín og stór stelpa. Hún átti nú ekki að koma fyrr en 14.janúar, er nú pínu fegin núna því hefði ekki meikað hana mikið stærri en þetta ;)

Annars gengur allt bara glimrandi vel.. erum að kynnast og koma okkur einhvern farveg.. gengur bara vel :) og auðvitað er hún yndislegust og fallegust :)

hendi inn einni mynd af henni svona síðan á gamlárs.. svo er hún auðvitað komin með heimasíðu:

http://www.barnaland.is/barn/68246

http://i13.tinypic.com/6u8p5ch.jpg

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:40:51 / gunna

Gleðileg Jól

Þarf ekki að hafa mikið fleiri orð um það. Eigiði góð jól og borðið á ykkur gat :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 12:03:43 / gunna

kominn desember..

Voðalega þykir mér tíminn fljótur að líða. Finnst eins og það hafi bara verið í síðustu viku sem ég var að hneykslast á því að Ikea og Rúmfatalagerinn væru búin að setja upp jólaskrautið.. og það var rétt eftir miðjan október!

Annars er bara bið í gangi sko.. bið eftir jólum.. bið eftir barni..og svoleiðis.. hef samt fullt að gera þangað til.. ætti kannski að fara að huga að jólagjöfum.. svona kannski rétt fyrir þorláksmessu ;)

Blóðþrýstingurinn farinn að hækka.. ekki er það nú sniðugt.. Vona að hann hætti því núna og ég haldi stabíl aðeins lengur.. Er nefninlega ROSALEGA farin að hlakka til að borða hamborgarhrygg og svollis á jólunum :) og ekki er það gott fyrir þrýsting og bjúg... vil nú líka halda þessu blessaða barni inni fram yfir áramót...bæði vegna afmælisdags og fæðingarorlofs :)

en anywho.. best að gera sig reddí.. þarf að fara niður á deild í blóðþrýstingsmælingu..jibbí kóla! :)

svo að lokum.. þið voruð eitthvað að kvarta undan bumbumyndaleysi. Tók tvær áðan og skelli þeim núna inn.. komin 34v1

Á eitthvað erfitt með að setja þær hérna inn í færsluna.. setti þær undir myndir.. bumbumyndir.. ætla að vona að það hafi tekist.. leitið og þér munuð finna ;) 

 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 12:14:47 / gunna

þetta gat ég...

jáh.. ikea hillan er komin upp! og ekkert grenjað í þetta skiptið;) en ég tók samt smá dans um stofuna þegar ég reisti hana við.. og hún hélst stöðug..haha.. það hefur verið skemmtileg sjón! :lol:

Það hlaut líka að koma að því.. vetur konungur kominn.. og ég ennþá á sumardekkjum! er búin að fresta þessu endalaust.. og auðvitað bítur þetta mig í rassgatið núna.. en ég fer bara lítið út í dag.. og svo first thing 2morrow verður brunað á verkstæði og dekkjunum skellt undir.. (ætli það verði svo ekki hiti og sól á morgun hehe)

Annars gengur lífið sinn vanagang.. bara mest bið í gangi núna.. smá vinna svona inn á milli en ekkert til að tala um...

jæja.. athyglin er engan veginn við þetta blogg núna.. er að horfa á 50cent, JT og Timbaland á MTV og á frekar erfitt með að taka augun af þeim... hehe.. talandi um að vera sveltur.... HAHA 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 12:53:25 / gunna

viðkvæmni

djííí... hún getur nú verið of mikil suma daga.. en maður getur hlegið eftir á. Eins og þið hafið kannski lesið þá keypti ég mér hillu í ikea og hún kom loksins.. En samt er hún búin að standa upp við vegg í tvær vikur ef ekki lengur.. Hafði eitthvað á tilfinningunni að þetta ætti eftir að reynast mér erfitt verk.

Svo á föstudagskvöldið tek ég mig til og hefst handa við verkið.. svona fyrstu 10 mínúturnar ganga vel. Tek þessu bara rólega.. horfi á sjónvarpið í millitíðinni og tek mér reglulegar pásur. Jæja. þegar hillan fer að taka á sig einhverja mynd vandast málið. Ég virðist ekki með nokkru móti koma henni saman! Þegar ég smelli henni á einum stað, dettur hún úr á öðrum og svo framvegis... eftir ca 20 mínútur af basli og blóti gafst ég upp! Settist á gólfið og grenjaði í hálftíma! jáh.. það var bara engin leið að stöðva þetta táraflóð.. og á meðan á því stóð átti ég í samræðum við helv... hilluna.. hágrenjandi á miðju stofugólfinu. Hef ekki lagt í að klára hana síðan þá;) en ég get hlegið að þessu núna.. þetta var ekki fyndið á meðan þessu stóð :lol:

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:31:51 / gunna

eitthvað finnst mér

óvenju mikið um heimsóknir á síðuna undanfarna daga.. spurning hvort að teljarinn seitthvað bilaður.. fyndið.. ætti að kæta mann að fá mikið af heimsóknum en mér finnst það eiginlega bara svolítið óþægilegt.. því ekki kvittar þetta blessaða fólk í gestabókina.. :$

annars gengur allt nokkuð veginn sinn vanagang.. bara same shit different day. Þarf svona að fara að huga að ýmsu.. kem mér bara ekki í það.. í staðinn stressast ég bara upp í hausnum og kem mér ekki í neitt.. en þetta reddast allt er haggi??? ;)

nú er bara sunnudagskvöld og ég að bíða eftir nýjum þætti af dr. 90210... alltaf nýr þáttur á sunmudögum..má sko ekki missa af því.. er svona að vega og meta hvað ég ætla að láta laga seinna meir ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 15:19:03 / gunna

ég held að ég

eigi yndislegustu fjölskyldu í heimi. Og bestu vinina til að fylgja líka., Hefur kannski ekki alltaf fundist það.. en vá hvað maður gerir sér grein fyrir því þegar maður verður eldri og á reynir. Snúast allir hringi í kringum rassgatið á manni. Allir boðnir og búnir til að hjálpa. Þó svo að maður vilji vera sjálfstæður og gera allt sjálfur verður maður stundum að gleypa stoltinu og fá hjálp..og það virðist ekki vera neinn skortur á henni..:).. vildi að allir væru jafn heppnir og ég...

 Í fréttum er þetta helst.. er komin með þvottavél.. jáh..  búin að búa hér í hvað?? 3 mánuði? og fötin farin að morkna utan af mér;) hehe.. nei.. á góða að..skelli mér í heimsókn til Dao og Vídda og skelli í eins og 1-2 vélar og læt bjóða mér í mat í leiðinni.. ljúfa lífið:) Þannig að nú er ég búin að þvo og þvo og þvo.. svona það sem ég lét sitja á hakanum.. og líka bara það sem var ekki óhreint.. bara svo gaman að þvo allt og hafa allt hreint ;) 

Fór svo í sykurþolspróf í morgun.. obbó gaman.. lagði af stað mjög svo snemma í morgun, átti að mæta 8 en vildi nú ekki lenda í einhverri aftanákeyrslu í hálkunni í reykjavík því mín er ennþá á sumardekkjunum.. þannig að ég gaf mér góðar 40 mínútur til að keyra þangað..haha..tók mig nú reyndar ekki nema 10-15 mínútur að komast á leiðarenda.. en það er bara í góðu.  Fékk svo að drekka þennan líka yndis góða sykurdrykk. Þær voru nú hissa á mér hvað ég var fljót að koma honum niður.. bara 1,2 og bingó.. pifff.. ég er nú enginn helv.. aumingi 8) svo tók við tveggja tíma blundur í lazyboy með vakningu á klukkutíma fresti og hrotum í blessuðu konunni við hliðina á mér:) ljúfa lífið.. en til að gera langa sögu stutta þá kom allt vel út.. engin sykursýki hjá mér.. svo það ætti ekki að þurfa að hafa sérstakar áhyggjur af risa barni.. sem er mjög gott.. langar voðalega lítið að fæða 20 marka barn.. en hver veit...?? ennþá rúmar 10 vikur eftir.. anything can happen ;)

anywho.. búin að bulla nóg núna.. ætla að taka út úr vél og setja í aðra... adios amigos! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 13:07:18 / gunna

þessi vara er í pöntun

hver kannast ekki við þessi yndislegu skilaboð í Ikea?? mikið djöfulli geta þau pirrað mig.. sérstaklega þegar það er EKKERT samræmi milli merkinga í verslun og á sjálfsafgreiðslulager! Þar sem að ég er svo skipulögð (haha) þá var ég búin að fara í Ikea í síðustu viku og athuga í verslun hvort að vörurnar væru ekki til. Jú jú.. það stóða allavega á miðunum að þær væru til.

Dreg svo pabba greyið með mér á föstudaginn beint úr flugi til að nota hann í að bera. Skrifum niður hvar vöruna er að finna en reyndar stóð að einn hlutur af þremur sem ég ætlaði að kaupa væri í pöntum. Varð nú ekkert ofsalega fúl þar sem að það var bara hilla á baðið.. kannski ekki mikilvægasti hluturinn.. anywho.. skundum niður á lagerinn til að ná í þetta allt... en neiiiii... kommóðan ekki til, hillan í stofuna ekki til (þó svo að ekkert hafi staðið um það í verslun) en baðhillan (sem var merkt í pöntun í verslun) var sko heldur betur til!

Oh! helvíti varð ég pirruð.. hefði nú alveg getað farið ein að ná í þessa skitnu hillu! og svo fæ ég þau svör að von sé á þessum vörum eftir 3-5 vikur.. sjáum hvað setur. 

Annars fékk ég nostalgíu dauðans á sunnudag.. haha.. setti á stöð 1 og horfði á high school musical held ég hún heiti.. nýja uppáhalds myndin mín:) langar að sjá cindarellu með brandy aftur.. og verða 16 aftur.. ekki sæmandi fyrir 23 ára manneskju að fíla svona myndir.. en who cares? bíð spennt eftir high school musical 2 :) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 17:00:29 / gunna

veit svosum ekki..

af hverju ég er með þetta blogg í gangi.. hef nákvæmlega ekkert að segja. Þessi vika er búin að líða löðurhægt áfram, enda ekki við öðru að búast þegar maður gerir ekki neitt og nennir ekki neinu heldur!

Ákvað að nú langaði mig að læra að prjóna.. jáh.. þá eru góð ráð dýr.. mamma á akureyri og ekki kemst ég langt á grunnskólaprjóninu.. þannig að ég fletti upp á netinu.. og þá kostar eitt stykki svoleiðis námskeið AÐEINS 24000 krónur! sussuss.. þó mig langi til að kunna að prjóna.. þá langar mig ekki svona mikið. Spurning um að gerast sjálfboðaliði á elliheimilum í smá stund og sjá hvort að gömlu geta ekki kennt mér smá slétt og brugðið;)

Annars afrekaði ég það að fara í ikea líka í vikunni.. keypti eina litla hillu á ganginn.. enda kominn tími til.. er nú búin að búa hér nógu lengi til að þurfa að gera einhvern andskotann;) er svo að fara í aðra ferð í ikea núna eftir smá stund.. pabbi að koma og ætlar með aumingja gunnu sinni í ikea að kaupa eins og eitt stykki kommóðu og kannski eins og tvö stykki hillur.. jáh.. gott að vera aumingi sem má ekki lyfta neinu þungu ;)

jæja kæru aðdáendur.. gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina.. en endilega fáið ykkur eins og einn kaldan bara fyrir mig.. gæti myrt fyrir einn thule akkúrat í augnablikinu, alkahólismi?? ;) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 21:45:22 / gunna

lífið gengur sinn vanagang

eins og segist.. same shit different day.. var nú reyndar að koma að norðan. Ég og Dao skelltum okkur ásamt tveimur grislingum í mömmumat.. alltaf gott að láta elda ofan í sig:)  ákváðum svo að skella okkur til baka í dag og svo eru mamma og pabbi rétt ókomin hingað suður.. nenntum sko ekki að hanga "einar" heima og þurfa að elda sjálfar! ég held nú ekki...:)

auðvitað er rigning og skemmtilegheit hérna í Reykjavík city.. enda ekki við öðru að búast:)

jáh... annars eru miklar pælingar í gangi í augnablikinu.. tíminn líður nefninlega alveg ágætlega hratt svona undanfarið svo að maður þarf aðeins að skipuleggja sig ef maður ætlar ekki að vera alveg óundirbúinn ;)

 

hasta pronto! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 12:59:51 / gunna

skyldublogg

finnst svona einhvernveginn að maður verði að henda inn eins og einu bloggi annað slagið:)

Hef svosum ekkert að segja.. eða ekki eitthvað sem maður vill setja á opinn vef (þó svo að ég láti ansi margt flakka;))

Er ennþá í veikindafríi.. og verð það alveg næstu mánuðina.. 12 vikur í að saumur verður fjarlægður... og vonandi allavega rétt rúmar 13 vikur í blessað barnið (vil nú ná að halda þessu fram yfir áramót;))

annars gengur allt bara nokkuð vel held ég.. lætur mig alveg finna fyrir sér með spörkum og snúningum á ókristilegum tímum... en maður hefur þá ekki áhyggjur af því að eitthvað sé að á meðan ;)

jæja.. þetta var skyldublogg í boði guðrúnar.. enjoy 


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 15:05:42 / gunna

sumt fólk

er bara of mikið drama... djííí.. ónefndur samstarfsmaður er einmitt svoleiðis. En okkur leiðist allavega ekki á meðan. Ég og Guðrún hringjumst á til að hneykslast á vissum aðila og þegar við svo hittumst er nú oftast talað um hann. Jáh.. lífið í sjoppunni væri ekki skemmtilegt ef ekki væri 1 og 1 svoleiðis;)

Endalausar afsakanir fyrir því að ekki er mætt í vinnu á réttum tíma t.a.m sambandsslit við ótrúan og ofbeldisfullan kærasta (notað oftar en einu sinni), endalausar umferðateppur og bílabilanir. Oftast fylgir þessu miklar sögur sem af einhverjum sökum hljóma ekki alveg eins eftir því hver er að hlusta.. endalausar heimsóknir á læknavaktina sem opnar nota bene kl 17 akkúrat þegar vaktin á að hefjast.. ógleði sökum óléttu og vesen vegna blæðinga og fósturmissis og það síðasta.. fósturmissir þar sem manneskjan átti að liggja inni á sjúkrahúsi en kemur svo upp úr krafsinu að er fóstureyðing sem átti sér stað fyrir 4 dögum og ég veit ekki hvað og hvað...

Þó að mér sé nú oftast sama hvernig fólk lifi sínu lífi og hafi vald til að gera nákvæmlega það sem það vill þá finnst mér LJÓTT að leika á samvisku fólks!! Sérstaklega með eitthvað svona! Gerðu það sem þú vilt en ekki ljúga alla fulla og láta það vorkenna þér ofaní rassgat bara svo þér líði betur..!

 

but anywho.. sem betur fer er ekki mikið af svona fólki..  :) annars er bara sami skítur hérna.. tæpar þrjár vikur búnar af veikindafríi.. nóg eftir.. skoðun á morgun.. ekki annað en gott um það að segja held ég.. nokkuð brött bara.. 

jæja.. farin að finna eitthvað að snæða.. lítið annað sem maður hefur að gera í þessu fríi en að éta;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 13:31:47 / gunna

pirruð!!!!!

ég get svo svarið það. Það virðist alltaf vera einhver helvítis seinkun á flugi! Virðast aldrei geta drullast á réttum tíma... tveggja til þriggja tíma seinkun.. og já.. það fer óstjórnlega í taugarnar á mér!

annars bara ekkert að frétta..stressuð í dag..ekkert sem ég þarf að vera stressuð yfir... en you know.. samt sem áður..

hef þá greinilega nógan tíma til að sofa á eftir þegar ég er búin að ná í elskulegan bróður minn út á flugvöll:) ferð 1 af 2. Það er þó ekki nema korter þar:)

og sigga mín..ég kem einhvern tímann norður..ekki kannski alveg um helgina.. en örugglega fljótlega mín kæra:) 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Final countdown
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1488 dögum
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Final countdown
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1509 dögum
Klukkan
Leitarbox